Fjársöfnun til styrktar Þórdísi Tinnu Aðalsteinsdóttur, 38 ára einstæðri móður sem berst við lungnakrabbamein
Þegar maður fær þær hörmulegu fréttir að einhver sem hefur verið manni samferða í gegnum lífið, nánast allt frá fæðingu, hefur greinst með lungnakrabbamein setur mann hljóðan. Maður upplifir sig lítinn og smáan. Algjörlega ráðalausan. Þannig varð okkur um, gömlu bekkjarsystkinum Þórdísar, þegar þær fréttir bárust að hún ætti við lífshættulegan sjúkdóm að stríða. Þúsund spurningar flugu í gegnum hugann, spurningar sem eiga sér engin svör og tilfinningar vöknuðu sem eru þess eðlis að þeim verður vart lýst með orðum. En það er sama hvað við hugsum, segjum eða gerum raunveruleikanum fáum við ekki breytt. Við stöndum frammi fyrir þeirri hræðilegu staðreynd að 38 ára gömul vinkona okkar er með lungnakrabbamein og berst fyrir lífi sínu.
Persónulegar aðstæður Þórdísar eru erfiðar. Hún sér ein fyrir Kolbrúnu, 8 ára gamalli, dóttur sinni þar sem hún er eina fyrirvinna heimilisins. Hún, eins og flestir aðrir á hennar aldri, þarf að standa við skuldbindingar sem stofnað hefur verið til vegna húsnæðiskaupa og rekstur heimilis. Næstu mánuði mun öll orka Þórdísar fara í að takast á við illvígan sjúkdóm og sinna dóttur sinni eftir bestu getu. Hún mun ekki geta sinnt launaðri vinnu og þar af leiðandi munu tekjur heimilisins minnka. Þórdís mun því ekki geta staðið við skuldbindingar sínar. Slíku fylgir vanlíðan og þegar ógreiddir reikningar safnast upp hjá henni er dýrmætri orku sóað í áhyggjur. Þórdís þarf á óskiptri orku sinni að halda til að sigrast á lungnakrabbameininu.
Þegar við, gömlu bekkjafélagar hennar, stóðum gagnvart þeim fréttum sem okkur bárust af henni langaði okkur öllum að standa við hlið hennar á þessum erfiðu tímum og létta henni baráttuna eins og kostur er. Fyrir utan að bjóða henni vináttu okkar og andlegan stuðning langar okkur að veita henni fjárstuðning. Það er því með auðmýkt og einlægri von sem við biðjum þig/ykkur um að taka þátt í fjársöfnun okkar til styrktar Þórdísi.
Með bestu kveðjum og von um jákvæð viðbrögð,
bekkjarsystkini úr Öldutúnsskóla
Kt: 101268-4039
Reikningsnúmer: 0140-05-015735 kt 101268-4039
Jón Páll HallgrímssonIBAN: IS25 0140 0501 5735 1012 6840 39
Swift: LAISISRE